Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 12:40
Elvar Geir Magnússon
Lewis-Skelly búinn að skrifa undir fimm ára samning og vill lyfta bikurum
Mynd: EPA
Enski varnarmaðurinn Myles Lewis-Skelly hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Arsenal.

Fyrri samningur þessa 18 ára gamals leikmannsins átti að renna út árið 2026.

Lewis-Skelly komst inn í aðalliðið síðasta tímabil og festi sig í sessi sem fastamaður undir stjórn Mikel Arteta, spilaði 39 leiki í öllum keppnum.

Arsenal endaði í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni þriðja árið í röð.

„Ég vil vinna allt sem er hægt að vinna í leiknum,“ sagði Lewis-Skelly við vefsíðu Arsenal.

„Ég vil vinna bikara á stærsta sviðinu og vera alltaf að læra og halda stöðugleika, sem er svo mikilvægt. Ég veit að ég hef lært mikið af leikjunum, bæði jákvæðu stundunum og mistökunum sem ég hef gert. Ég er örugglega betur undirbúinn fyrir næsta tímabil núna.“


Athugasemdir
banner