La Gazzetta dello Sport greinir frá því að forráðamenn Juventus búist við því að fá kanadíska sóknarmanninn Jonathan David á frjálsri sölu.
David er 25 ára og er án félags eftir að samningur hans við Lille rann út en hann og íslenski landsliðsmaðurinn Jonathan David náðu virkilega vel saman hjá franska félaginu.
David er 25 ára og er án félags eftir að samningur hans við Lille rann út en hann og íslenski landsliðsmaðurinn Jonathan David náðu virkilega vel saman hjá franska félaginu.
Kröfur frá umboðsmönnum David hafa flækt viðræðurnar en nú sé leikmaðurinn búinn að ná samkomulagi um kaup og kjör sem færi honum 6 milljónir evra í árslaun auk þess að geta fengið 2 milljónir í bónusgreiðslur.
Greiðslurnar sem Juventus fær fyrir þátttöku á HM félagsliða verða að stórum hluta notaðar í að borga David.
Gazzettan segir að David vilji ólmur fara til Juventus og hafi sagt umboðsmönnum sínum að gera allt til að ná samkomulagi.
Athugasemdir