Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 14:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Umfjöllun
Caulker verður spilandi aðstoðarþjálfari - „Hefur margar leiðir til þess að gera þetta lið betra"
Caulker á leik Stjörnunnar og KR í lok síðasta mánaðar.
Caulker á leik Stjörnunnar og KR í lok síðasta mánaðar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Caulker kemur sem spiland aðstoðarþjálfari inn í teymið hans Jökuls.
Caulker kemur sem spiland aðstoðarþjálfari inn í teymið hans Jökuls.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hinn 33 ára Caulker býr yfir mjög mikilli reynslu.
Hinn 33 ára Caulker býr yfir mjög mikilli reynslu.
Mynd: EPA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steven Caulker var í dag kynntur sem nýr leikmaður Stjörnunnar. Hann fær leikheimild með liðinu eftir að félagaskiptaglugginn opnar 17. júlí. Caulker á að baki yfir 100 leiki í ensku úrvalsdeildinni á sínum ferli og var m.a. á mála hjá Tottenham og Liverpool.

Hann gæti þó verið á hliðarlínunni á morgun, sem hluti af þjálfarateymi Jökuls Elísabetarsonar. Fótbolti.net ræddi við Jökul ídag.

„Það er mjög ánægjulegt að hafa landað honum, ég held að hann geti bætt miklu við okkar hóp, mjög sterkur og öflugur karakter sem ætti að ýta við okkur með jákvæðum hætti," segir Jökull.

„Hann verður í þjálfarateyminu, aðstoðarþjálfari og leikmaður. Ég vænti mikils af honum á báðum sviðum."

„Mér er alveg sama um (starfs)titla í rauninni, en það skiptir kannski máli fyrir einhverja, og hann kemur inn sem aðstoðarþjálfari. Hann verður mjög mikill þátttakandi í því sem við erum að gera og verður í teyminu með mjög afgerandi hætti - fær stórt hlutverk þar. Hann er auðvitað líka fenginn sem leikmaður og það hlutverk á eftir að koma í ljós. Hann verður ekki löglegur næstum því strax. Það á margt eftir að gerast fram að því."


Á þessum tímapunkti sérðu hann fyrir þér sem einn af miðvörðunum?

„Ég sé eiginleika hans nýtast best í miðverði. Ég er alltaf aðdáandi þess að horfa meira í eiginleika hvers og eins leikmanns frekar en endilega stöðu. Í hans tilfelli held ég að ég þyrfti að flippa svolítið vel til þess að færa hann í einhverja aðra stöðu."

Það er sjaldnast þannig að mönnum er lofað að þeir fái að spila, hvernig séður hans hlutverk í liðinu?

„Hann vill bara koma og hjálpa, hjálpa því sem þjálfari og leikmaður. Ef hann hjálpar liðinu og varnarmönnunum sem fyrir eru að verða ennþá meira afgerandi en þeir eru núna, þá er leiðin orðin lengri í að hann spili. Hann er fullkomlega sáttur ef það fer í þá átt, áttar sig á því að hann er þá að gera liðið betra. Hann hefur margar leiðir til þess að gera þetta lið betra, hvort sem það er inn á vellinum eða ekki. Það er margt í honum sem ég sé sem getur hjálpað okkur; aðallega karakterinn og það sem hann stendur fyrir. Hann getur hjálpað hópnum með reynslunni sem hann kemur með. Hann er sterkur leikmaður og getur orðið mjög öflugur þjálfari."

„Þetta á allt eftir að koma í ljós. Við erum opnir fyrir öllu sem getur gerst í því samspili,"
segir Jökull.

Stjarnan ræddi fyrst við Caulker í fyrra og svo kom möguleikinn upp aftur í vor. Caulker mætti á Stjörnuleik í lok síðasta mánaðar og í dag voru félagaskiptin staðfest. Hversu gott er að þetta sé orðið klárt?

„Það er bara frábært, ég er svo sem alltaf bara mjög rólegur. Þetta kláraðist ekki bara í dag, en það er bara mjög gott að þetta sé frágengið og hann kominn. Hann var sem þjálfari á æfingunni áðan. Það hefur áhrif að fá öflugan mann, sama hvort hann sé risa prófíll eða ekki, bara að fá öflugan mann inn. Maður fann það alveg á fyrstu æfingu."

Verður hann á bekknum á morgun sem þjálfari?

„Það er eitthvað sem við erum að skoða, hann ætti að geta verið löglegur á skýrslu og ef við náum því, þá verður hann með okkur á morgun," segir Jökull.

Leikur Stjörnunnar og Breiðabliks hefst klukkan 19:15 annað kvöld og fer fram á Samsungvellinum í Garðabæ.
Athugasemdir
banner
banner