
Lestu um leikinn: Njarðvík 3 - 1 Keflavík
„Gríðarleg vonbrigði með tapið" sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir tapið í kvöld.
„Mikið jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik og svo finnst mér við taka aðeins yfir í seinni hálfleik og sleppum nátturlega einir í gegn tveir á móti markmanni og þá eigum við að fá klárt víti og þá hefði Kenny (Kenneth Hogg) verið rekinn útaf og það hefði kannski breytt ýmsu"
„Við komum til baka og setjum mark og komumst í 1-0 stöðu og þannig er staðan þegar það eru einhverjar þrettán mínútur eftir af leiknum og það er ótrúlegt að við skulum ekki fara héðan með allavega eitt stig"
Gengi Keflavíkur í síðustu leikjum hefur ekki verið sérstakt en Keflavík er án sigurs í síðustu fimm leikjum í Lengjudeildinni.
„Það er ekkert gaman að vinna ekki leiki og fá bara eitt stig fyrir jafntefli. Við þurfum að fara vinna leiki það er orðið ennþá lengra síðan heldur en síðast. Við þurfum bara að gjörusvovel að fara gyrða okkur í brók og fara vinna fótboltaleik"
Nánar er rætt við Harald Freyr Guðmundsson í spilaranum hér fyrir ofan.
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Njarðvík | 10 | 5 | 5 | 0 | 24 - 10 | +14 | 20 |
2. ÍR | 9 | 5 | 4 | 0 | 12 - 4 | +8 | 19 |
3. HK | 9 | 5 | 2 | 2 | 17 - 9 | +8 | 17 |
4. Þór | 9 | 4 | 2 | 3 | 20 - 17 | +3 | 14 |
5. Þróttur R. | 9 | 4 | 2 | 3 | 16 - 15 | +1 | 14 |
6. Völsungur | 9 | 4 | 1 | 4 | 15 - 19 | -4 | 13 |
7. Keflavík | 9 | 3 | 3 | 3 | 16 - 12 | +4 | 12 |
8. Grindavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 22 - 19 | +3 | 11 |
9. Leiknir R. | 9 | 2 | 2 | 5 | 10 - 22 | -12 | 8 |
10. Fylkir | 9 | 1 | 4 | 4 | 10 - 14 | -4 | 7 |
11. Fjölnir | 9 | 1 | 3 | 5 | 11 - 19 | -8 | 6 |
12. Selfoss | 9 | 2 | 0 | 7 | 6 - 19 | -13 | 6 |