Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
   lau 28. apríl 2018 16:45
Arnar Daði Arnarsson
Kristján Guðmunds: Of margir að spila illa
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Guðmundsson þjálfari ÍBV segir það ekki hafa verið óska byrjun að tapa með þremur mörkum í 1. umferðinni gegn Breiðablik í dag, 4-1.

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  1 ÍBV

„Við byrjum leikinn vel en endum hann mjög illa,” sagði Kristján en í stöðunni 2-1 fyrir Breiðablik þá ákveður hann að setja meiri sóknarþunga í liðið með það að markmiði að ná að jafna metin.

Það gekk ekki betur en svo að í kjölfarið skoruðu Breiðablik tvö mörk í viðbót.

„Við prófuðum að opna leikinn og spila með fleiri framherja en réðum ekkert við það og liðið galopnaðist. Við réðum ekkert við það að fara aðeins djarfara inn í leikinn til að jafna og í staðin töpuðum við stærra. Það var áhætta sem við tókum og það verður að hafa það.”

Kristján var ósáttur með hversu margir leikmenn liðsins voru að spila undir getu.

„Seinni hálfleikurinn var alveg afleitur. Ef ég lít heilt yfir leikinn þá voru of margir leikmenn í liðinu að spila illa. Það geta ekki svona margir leikmenn spilað illa í einum leik, það er ekkert lið sem þolir það eins og kom í ljós.”

Kristján staðfesti að varnarmaðurinn David Atkinson sem spilaði með ÍBV seinni hluta síðasta sumars væri á leiðinni aftur í ÍBV.

En eru fleiri leikmenn á leiðinni?

„ Ég veit það nú ekki, en ef þú horfir á frammistöðuna í leiknum þá veitir kannski ekkert að því,” sagði Kristján að lokum og glotti.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Athugasemdir
banner