Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
   lau 28. september 2019 16:43
Magnús Þór Jónsson
Óli Kristjáns: Það er alltaf hægt að reka mig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafi Kristjánssyni þjálfara FH var létt í leikslok eftir 3-0 sigur á Grindavík í dag.

"Það er hvoru tveggja léttir og gleði í dag. Ég var mjög ánægður að við skyldum skora á þá í fyrri hálfleik.  Við spilum leik við þá hérna í sumar sem við skorum 7 mörk en fórum svo til Grindavíkur í næsta leik og gerðum markalaust jafntefli. Þeir eru mjög sterkir varnarlega, eru það lið sem hefur fengið á sig hvað fæst mörk og það er erfitt að brjóta þá niður."

Lestu um leikinn: FH 3 -  0 Grindavík

Leikurinn í dag var lykilatriði að því að FH-ingar gætu farið með bros út úr tímabilinu.

"Það er rétt, það hefði verið glatað að ná ekki þessu Evrópusæti.  Ég sagði það í viðtölum að hér hefur verið frábær árangur, ég er búinn að vera hér í tvö ár og ekki náð árangri sem þjálfari sem hefur verið í takt við það.  Fyrir mig og alla þá var mikilvægt að vinna leikinn og gefa okkur möguleika á því að byggja FH upp og keppa um titla."

Hvað um hann sjálfan og hans stöðu hjá FH.

"Spurningin um það hvort ég verð áfram er skemmtileg því það er jú þannig að það eru tveir aðilar sem gera samninginn, ég hef ekki athugað hvort ég er með uppsagnarákvæði en það er alltaf hægt að reka mig sko!"

Reiknar hann með því?

"Maður heyrir ýmislegt úti i bæ sko! Að öllu gamni slepptu þá er það sko ekki hlutur sem ég pæli í eina sekúndu.  Ég hef verið rekinn það oft að ég veit að menn telja það vera eðlilegasta hlut að vera rekinn sem þjálfari og brottrekstur hefur ekkert með það að segja hvort þú ert góður eða slakur þjálfari, þetta segi ég fyrir hönd allra kollega minna."

Að því gefnu að hann verði áfram, er þá ekki uppbyggingarfasi framundan í Krikanum?

"Það má alveg búast við því, einhverjir eru að hætta en það gefur möguleika líka á því að hægt verði að byggja upp á ný."

Framundan er lokahóf, fara menn ekki glaðir í það.

"Jú, menn voru með yfirlýsingar inni í klefa og ég er búinn að gefa leyfi fyrir tveimur köldum" sagði þjálfarinn með bros á vör, nánar er rætt við hann í viðtalinu sem fylgir.
Slapp
Athugasemdir
banner