Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
   sun 29. maí 2016 20:14
Arnar Geir Halldórsson
Túfa: Nýttum færin ekki nógu vel
Eggert Sigmundsson og Srdjan Tufegdzic
Eggert Sigmundsson og Srdjan Tufegdzic
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Srdjan Tufegdzic, þjálfari KA, var ánægður með uppskeruna eftir ferðalag liðsins á Reyðarfjörð í dag þar sem KA-menn unnu 1-0 sigur á Leikni Fáskrúðsfirði.

Ásgeir Sigurgeirsson gerði eina mark leiksins og kom það í uppbótartíma fyrri hálfleiks en Túfa hefði viljað sjá sitt lið skora fleiri mörk.

„Ég er mjög ánægður að fá þrjú stig í dag. Við fengum fleiri færi til að klára þennan leik miklu fyrr en það tókst ekki alveg að klára færin. Ég er samt mjög ánægður með þrjú stig," sagði Túfa.

KA-menn eru með níu stig eftir fjórar umferðir og viðurkennir Túfa að hann sé ekki fullkomlega ánægður með byrjunina á mótinu.

„Já og nei. Markmiðið okkar var að taka öll stig en við höfum bara tekið níu. Nú verðum við bara að halda áfram, það eru bara fjórir leikir búnir og við hugsum núna um næsta leik," sagði Túfa.
Athugasemdir
banner
banner