Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 07:20
Ívan Guðjón Baldursson
Acheampong ekki til sölu - Santos svipaður Enzo
Mynd: EPA
Chelsea er statt í Bandaríkjunum þessa dagana þar sem liðið keppir á HM félagsliða og er komið í 8-liða úrslit eftir sigur gegn Benfica í gærkvöldi.

Josh Acheampong og Andrey Santos voru báðir ónotaðir varamenn í sigrinum.

„Ég hef miklar mætur á Josh, hann er mjög efnilegur leikmaður sem getur orðið mikilvægur fyrir félagið. Hann er partur af áformum okkar hjá Chelsea og við viljum ekki selja hann," svaraði Maresca þegar hann var spurður út í Acheampong, áður en hann snéri sér að Santos.

„Andrey Santos er að æfa mjög vel með okkur eftir að hafa átt frábært tímabil á láni hjá Strasbourg í fyrra. Ég lít á hann sem Enzo Fernández týpu, hann er sóknarsinnaður miðjumaður frekar en varnarsinnaður. Hann líkist Enzo meira heldur en Moises (Caicedo) eða (Romeo) Lavia sem eru varnarsinnaðari."

Chelsea mætir Palmeiras í 8-liða úrslitum. Þar fær þjálfarateymi Chelsea frábært tækifæri til að skoða Estevao sem flytur til London eftir HM.
Athugasemdir