Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Eftirsóttur Otamendi samþykkir nýjan samning
Mynd: EPA
Argentínski varnarjaxlinn Nicolás Otamendi er búinn að gera nýjan samning við portúgalska stórveldið Benfica.

Otamendi er 37 ára gamall og var að renna út á samningi um mánaðamótin, en verður nú áfram hjá félaginu út næsta keppnistímabil.

Miðvörðurinn er staddur með Benfica í Bandaríkjunum þessa dagana þar sem hann spilaði alla leiki liðsins á HM félagsliða. Hann gerði eitt mark og tvær stoðsendingar í fjórum leikjum á HM en tókst ekki að koma í veg fyrir tap gegn Chelsea í 16-liða úrslitum í gærkvöldi.

Otamendi er mikilvægur hlekkur í varnarlínu Benfica þrátt fyrir háan aldur og spilaði hann 50 leiki fyrir félagið á nýliðnu tímabili. Hann kom að 14 mörkum í þessum 50 leikjum enda er hann stórhættulegur í föstum leikatriðum.

Otamendi er ennþá mikilvægur hlekkur í landsliði Argentínu og hefur spilað þrjá A-landsleiki á þessu ári eftir að hafa spilað 14 leiki í fyrra. Hann á í heildina 126 landsleiki að baki fyrir Argentínu.

Varnarmaðurinn lék fyrir Valencia og Manchester City áður en hann skipti yfir til Benfica og hefur unnið ótal titla á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta, meðal annars HM, Copa América, ensku úrvalsdeildina og Evrópudeildina.

Otamendi var með ýmis samningstilboð á borðinu en valdi að lokum að vera áfram hjá Benfica. Félög frá Sádi-Arabíu voru sérstaklega áhugasöm en markmið Otamendi er að fara með Argentínu á HM á næsta ári. Hann telur að félagaskipti til Mið-Austurlandanna séu ekki að fara að hjálpa möguleikum sínum um að tryggja sér sæti í landsliðshópnum fyrir HM.
Athugasemdir
banner