Þjálfarinn þaulreyndi Jorge Jesus hefur samþykkt að taka við þjálfun á sádi-arabíska stórveldinu Al-Nassr. Santi Aouna hjá Foot Mercato segir að þjálfarinn verður kynntur til leiks á næstu dögum.
Jesus er 70 ára Portúgali sem starfaði síðast við stjórnvölinn hjá Al-Hilal frá 2023 til 2025, en hann hefur einnig stýrt Fenerbahce og Flamengo á flottum þjálfaraferli. Hann varði þó mestum tíma í Portúgal þar sem hann stýrði meðal annars stórveldunum Benfica og Sporting CP.
Cristiano Ronaldo er nýlega búinn að skrifa undir nýjan samning við Al-Nassr og gaf hann grænt ljós á þjálfaraskiptin fyrir samlanda sinn.
Jesus mun þjálfa leikmenn á borð við Mohamed Simakan, Aymeric Laporte, Marcelo Brozovic og Sadio Mané hjá Al-Nassr, sem endaði í þriðja sæti sádi-arabísku deildarinnar á síðustu leiktíð með 70 stig úr 34 leikjum.
Athugasemdir