Newcastle United er enn í viðræðum við Burnley um kaup á markverðinum James Trafford.
Burnley er búið að hafna 25 milljón punda tilboði frá Newcastle í markvörðinn sinn sem hjálpaði liðinu að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð.
Trafford er 22 ára gamall og hefur verið aðalmarkvörður Burnley í tvö ár eftir að félagið keypti hann frá Manchester City fyrir 15 milljónir punda.
Hann er uppalinn hjá Man City og hefur verið aðalmarkvörður Englands upp yngri landsliðin.
Trafford er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir samningi hjá Newcastle en félögin eiga eftir að komast að samkomulagi. Markvörðurinn á tvö ár eftir af samningi sínum við Burnley.
Hjá Newcastle myndi Trafford berjast við NIck Pope og Martin Dúbravka um byrjunarliðssætið á milli stanganna.
Athugasemdir