Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   sun 29. júní 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
HM í dag - PSG og Bayern máta sig við lið úr öðrum heimsálfum
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
16-liða úrslitin eru farin af stað á HM félagsliða og mæta tvö af stærstu félagsliðum Evrópu til leiks í dag.

Ríkjandi Evrópumeistarar PSG spila við Lionel Messi og félaga í Inter Miami. Þar mun Messi mæta nokkrum af sínum fyrrum liðsfélögum hjá PSG þegar hann var á mála hjá stórveldinu frá 2021 til 2023.

Í kvöld spilar FC Bayern svo við brasilíska stórveldið Flamengo en Bæjarar lentu óvænt í öðru sæti síns riðils eftir tap gegn Benfica í lokaumferð riðlakeppninnar. Flamengo lagði Chelsea að velli í riðlakeppninni og sigraði riðilinn sem innihélt einnig Esperance og Los Angeles FC.

Leikir dagsins
16:00 PSG - Inter Miami
20:00 Flamengo - Bayern
Athugasemdir
banner