Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Leverkusen að ganga frá kaupum á lykilmanni PSV
Tillman kom að 21 marki í 34 leikjum með PSV á síðustu leiktíð, með 16 mörk og 5 stoðsendingar.
Tillman kom að 21 marki í 34 leikjum með PSV á síðustu leiktíð, með 16 mörk og 5 stoðsendingar.
Mynd: EPA
Þýska stórveldið Bayer Leverkusen er að ganga frá kaupum á Malik Tillman úr röðum PSV Eindhoven.

Tillman er 23 ára gamall og leikur sem sóknarsinnaður miðjumaður að upplagi en getur einnig spilað úti á köntunum.

Leverkusen þarf að greiða um 40 milljónir evra til að kaupa Tillman, sem er bandarískur landsliðsmaður eftir að hafa spilað fyrir Þýskaland upp yngri landsliðin.

Tillman spilaði 21 landsleik fyrir yngri lið Þjóðverja áður en hann kaus að spila fyrir A-landslið Bandaríkjanna. Hann er lykilmaður á miðjunni þar og hefur skorað 3 mörk í 22 landsleikjum,

Fabrizio Romano greinir frá því að Leverkusen sé afar nálægt því að ganga frá kaupum á Tillman sem mun berjast við Aleix García, Exequiel Palacios og Jonas Hofmann um sæti í byrjunarliðinu.
Athugasemdir
banner