Frederico Varandas, forseti Sporting Lisbon í Portúgal, segir engar líkur á því að sænski framherjinn Viktor Gyökeres verði seldur fyrir 70 milljónir evra í sumar.
Markamaskínan hefur skorað 97 mörk á tveimur tímabilum sínum með Sporting og er einn eftirsóttasti bitinn á markaðnum í sumarglugganum.
Arsenal og Manchester United eru meðal þeirra félaga sem vilja fá Gyökeres sem var talinn falur fyrir um það bil 60 milljónir punda, en forsetinn hefur neitað fyrir það.
Gyökeres, sem er 27 ára gamall, er sagður afar óánægður með vinnubrögð forsetans sem á að hafa lofað honum að hann fengi að fara fyrir 60 milljónir.
Í kjölfarið hefur Svíinn neitað að mæta á æfingar með Sporting til þess að þrýsta á félagið til að selja hann, en Varandas hefur sent skýr skilaboð til framherjans.
„Ég ætla ekki að segja ykkur verðið en Viktor veit verðmiðann. Það eina sem ég get sagt ykkur að það er ekki séns að hann fari fyrir 60 milljónir plús 10 milljónir. Það mun ekki gerast,“ sagði Varandas við ABola.
Varandas er hins vegar viss um að Gyökeres fái sínu framgengt og að hann verði seldur áður en sumarglugginn lokar.
„Hann verður seldur, nema hann sé með versta umboðsmann heims, en ég á erfitt með að trúa því þar sem hann er einn besti fótboltamaður heims,“ sagði hann enn fremur.
Athugasemdir