Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
banner
   lau 29. ágúst 2015 09:30
Magnús Már Einarsson
Guðmunda Brynja: Vil fá 2000 Sunnlendinga á völlinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við eigum harma að hefna þar sem þær tóku bikarinn í fyrra. Við ætlum að reyna að taka hann núna," segir Guðmunda Brynja Óladóttir fyrirliði Selfyssinga um bikarúrslitaleikinn gegn Stjörnunni í dag.

Selfoss tapaði 4-0 gegn Stjörnunni í bikarúrslitaleik í fyrra en þessi sömu lið eigast við í úrslitunum í ár.

„Það var í fyrsta skipti og engin hafði spilað á Laugardalsvelli þannig að spennustigið var aðeins of hátt hjá okkur. Núna erum við að gera þetta í annað skipti og það er miklu meiri ró yfir hópnum. Við vitum hvað við erum að fara að gera."

Mikil stemning er á Selfossi fyrir leiknum og margir stuðningsmenn ætla að mæta á völlinn í dag.

„Við viljum alltaf bæta okkur og stefnan er sett á að fá fleiri rútur frá Selfossi og bæta áhorfendametið. Við vorum með 1500 manns í fyrra ca og ég vil fá 2000 Sunnlendinga á völlinn núna."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner