Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
   mán 30. maí 2016 21:53
Magnús Þór Jónsson
Heimir: Við verðum að fara að gera betur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson var einfaldlega hundsvekktur með frammistöðu sinna manna í 1-1 jafntefli við Víkinga í Kaplakrika í kvöld.

"Mér fannst fyrri hálfleikurinn allt í lagi, við náðum að opna þá og skapa okkur færi.  Seinni hálfleikurinn var skelfilegur, við höfðum engan áhuga á að spila, lítil hreyfing og það vantaði allt drápseðli í liðið". 

Heimir var á því að menn hefðu gleymt því að Víkingar berjast til síðasta manns.

"Á meðan þú nærð ekki að skora meira en eitt mark þá er alltaf séns fyrir hitt liðið og menn virðast bara hafa gleymt leiknum hér 2013 þegar við vorum 2-0 yfir þegar fór í gang einhver sirkus.  Menn eiga að vita það að Víkingar gefast ekkert upp."

Eftir tvö jafntefli í röð fara FH-ingar næst í Kópavoginn og spila við Blika, er ekki bara komin krafa á þrjú stig þar eftir uppskeruna að undanförnu?

"Við þurfum að spila 90 góðar mínútur á móti Breiðablik, þeir eru með hörkulið og við verðum að fara að gera betur".

Nánar er rætt við Heimi í fréttinni sem fylgir.
Athugasemdir
banner