Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 30. júní 2025 11:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Segja Inter hafa gengið frá kaupum á Karólínu Leu
Icelandair
EM KVK 2025
Karólína Lea á æfingu landsliðsins í gær.
Karólína Lea á æfingu landsliðsins í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Það virðist sem svo að það verði tveir íslenskir leikmenn hjá Inter á Ítalíu á næsta tímabili.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir er sterklega orðuð við liðið eftir að hafa leikið þar frábærlega á láni á síðasta tímabili en núna er sagt að Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sé að ganga í raðir félagsins.

Ítalski fréttamaðurinn Mauro Munno segir í dag frá því að það sé frágengið að Karólína Lea gangi í raðir ítalska stórliðsins og Orri Rafn Sigurðarson, fyrrum fréttamaður Fótbolta.net, segir að kaupin séu frágengin og þau verði tilkynnt á næstu dögum.

Karólína hefur síðustu tvö tímabil verið á láni hjá Bayer Leverkusen og staðið sig vel. Hún er samningsbundin Bayern München en verður keypt til Inter.

Karólína er núna stödd í Sviss þar sem hún er á sínu öðru stórmóti með Íslandi.



Athugasemdir
banner