Áhugi Man Utd á Delap eykst - Telja að Salah hafi áhuga á að fara til Sádi-Arabíu - Newcastle reynir við Elliott
þriðjudagur 1. apríl
Mjólkurbikar karla
sunnudagur 30. mars
Meistarar meistaranna
föstudagur 28. mars
Bosemótið - Úrslit
Úrslit Lengjubikars kvenna
þriðjudagur 25. mars
Kjarnafæðimót - úrslit
Milliriðill U19
Vináttulandsleikur U21
sunnudagur 23. mars
Umspil Þjóðadeildarinnar
laugardagur 22. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
fimmtudagur 20. mars
Umspil Þjóðadeildarinnar
miðvikudagur 19. mars
U19 milliriðill
þriðjudagur 18. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
föstudagur 14. mars
þriðjudagur 25. febrúar
Þjóðadeild kvenna
föstudagur 21. febrúar
fimmtudagur 20. febrúar
Sambandsdeildin
föstudagur 31. janúar
Úrslitaleikur Þungavigtarbikarsins
fimmtudagur 30. janúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 19. desember
Sambandsdeildin
mánudagur 2. desember
Vináttulandsleikur
föstudagur 29. nóvember
fimmtudagur 28. nóvember
Sambandsdeildin
þriðjudagur 19. nóvember
Þjóðadeildin
sunnudagur 17. nóvember
U21 - Vináttuleikur
laugardagur 16. nóvember
Þjóðadeildin
U19 karla - Undank. EM 2025
fimmtudagur 7. nóvember
Sambandsdeildin
þriðjudagur 5. nóvember
Undankeppni EM U17
sunnudagur 27. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 24. október
Vináttulandsleikur
Sambandsdeildin
sunnudagur 20. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 19. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
þriðjudagur 15. október
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
mánudagur 14. október
Landslið karla - Þjóðadeild
föstudagur 11. október
fimmtudagur 10. október
Undankeppni EM U21 karla
sunnudagur 6. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 5. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 3. október
Sambandsdeild Evrópu
mánudagur 30. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 29. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 27. september
Fótbolti.net bikarinn
miðvikudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 23. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeildin - Umspil
sunnudagur 22. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Lengjudeildin - Umspil
laugardagur 21. september
Mjólkurbikarinn - Úrslit
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 20. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 19. september
Lengjudeild karla - Umspil
miðvikudagur 18. september
Lengjudeildin - Umspil
mánudagur 16. september
Besta-deild karla
miðvikudagur 2. apríl
Championship
Derby County - Preston NE - 18:45
Úrvalsdeildin
Bournemouth - Ipswich Town - 18:45
Brighton - Aston Villa - 18:45
Man City - Leicester - 18:45
Newcastle - Brentford - 18:45
Southampton - Crystal Palace - 18:45
Liverpool - Everton - 19:00
Bikarkeppni
Stuttgart - RB Leipzig - 18:45
WORLD: International Friendlies
Hungary U-18 - Montenegro U-18 - 14:00
Bikarkeppni
Milan - Inter - 19:00
Bikarkeppni
Atletico Madrid - Barcelona - 19:30
mið 10.apr 2019 12:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 12. sæti: HK

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að nýliðar HK endi í 12. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Fréttaritarar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. HK endar í 12. sæti ef spáin rætist.

Ásgeir Börkur er kominn í HK.
Ásgeir Börkur er kominn í HK.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Bjarni Gunnarsson.
Bjarni Gunnarsson.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Arnþór Ari er mættur í Kórinn.
Arnþór Ari er mættur í Kórinn.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Brynjar Björn fór upp með HK á sínu fyrsta ári.
Brynjar Björn fór upp með HK á sínu fyrsta ári.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. HK 12 stig

Um liðið: HK lék síðast í deild þeirra bestu sumarið 2008 eftir langa fjarveru eru þeir komnir aftur eftir að hafa endað í 2. sæti í Inkasso-deildinni í fyrra eftir að hafa verið á toppi deildarinnar fyrir síðustu umferðina.

Þjálfari - Brynjar Björn Gunnarsson: Brynjar Björn Gunnarsson tók við HK fyrir síðasta tímabil þegar Jóhannes Karl Guðjónsson hætti til að taka við ÍA. Brynjar Björn er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður en hann var aðstoðarþjálfari hjá Stjörnunni áður en hann tók við HK. Hann fór upp með HK á sínu fyrsta ári og spennandi verður að sjá hann sem aðalþjálfara í efstu deild.

Styrkleikar: Það er mikið af heimamönnum í hópnum og í fyrra einkenndist liðið af mikilli stemningu innan hópsins. Þeir fara pressulausir inn í sumarið og það gæti hjálpað þeim. Kórinn, heimavöllur HK gæti reynst þeim vel en þeir töpuðu aðeins einum leik á heimavelli í Inkasso-deildinni í fyrra. Mörgum liðum er illa við að spila innandyra yfir sumartímann og HK gæti grætt á því.

Veikleikar: HK-ingar koma ískaldir inn í deildina eftir að hafa ekki unnið leik í Lengjubikarnum. Eina stigið kom gegn nýliðum Aftureldingar í Inkasso-deildinni. Þeim vantar reynslu á mörgum stöðum. Töluverðar breytingar hafa orðið á liðinu og styrkingin ekki nægilega mikil til að fylla upp í þann mun sem er á milli Pepsi- og Inkasso-deildarinnar. Einhverjir tala um að orðið 'fallbyssufóður' gæti verið notað í sumar.

Lykilmenn: Arnþór Ari Atlason og Björn Berg Bryde. Arnþór Ari þarf að vera 100% fyrir HK í sumar svo ekki fari illa. Hann þarf að bera uppi sóknarleik liðsins og hjálpa liðinu að skora mörk. Björn Berg, sem kom á láni frá Stjörnunni, þarf að fylla skarð Guðmundar Júlíussonar sem er meiddur og leikur ekkert með HK í sumar. Bjössi var öflugur í vörn Grindavíkur í fyrra og það mun mæða enn meira á honum í sumar.

Gaman að fylgjast með: Emil Atlason. Sleit krossband í maí 2017 í leik með Þrótti R. Lék 13 leiki með Þrótti í Inkasso-deildinni í fyrra en gekk í raðir HK í vetur. Emil er fyrrum unglingalandsliðsmaður sem lék með KR og Val á sínum tíma. Nær hann að sýna sitt rétta andlit í sumar eftir erfið ár að undanförnu?

Spurningamerkið: Markvarðarstaðan er stórt spurningarmerki í Kórnum. Arnar Freyr Ólafsson varði mark HK síðasta sumar en hann á tvo leiki að baki í Pepsi-deildinni með Fjölni og Leikni R. fyrir fjórum og fimm árum síðan. Menn hafa alveg séð reynslumeiri leikmenn spila í markinu í efstu deild á Íslandi og hann þarf að sanna sig.

Völlurinn: HK spilar heimaleiki sína í Kórnum og HK verður fyrsta félagið til að vera með aðalvöll innandyra í efstu deild á Íslandi.

Þjálfarinn segir - Brynjar Björn Gunnarsson
„Þessi spá kemur mér svosem ekkert á óvart. Það er ekkert óeðlilegt að liðið sem kemur upp í deildina er spáð neðri hlutanum. Að vera spáð 12. sæti breytir engu fyrir okkur. Þetta er engin sérstök mótivering fyrir okkur. Þessi spá endurspeglar gengið í vetur en þegar mótið byrjar þá verðum við klárir í mótið. Við erum með okkar markmið og það er að halda sér í deildinni og rúmlega það."

Komnir:
Arnþór Ari Atlason frá Breiðabliki
Atli Arnarson frá ÍBV
Ásgeir Börkur Ásgeirsson frá Fylki
Emil Atlason frá Þrótti R.
Aron Kári Aðalsteinsson frá Breiðablik (Á láni)
Kári Pétursson frá Stjörnunni

Farnir:
Aron Elí Sævarsson í Val (Var á láni)
Sigurpáll Melberg Pálsson í Fjölni (Var á láni)
Zeiko Lewis (Var á láni)
Eiður Gauti Sæbjörnsson
Hákon Þór Sófusson
Ingiberg Ólafur Jónsson
Árni Arnarson - samningslaus

Fyrstu fimm leikir HK:
27. apríl FH - HK
4. maí HK - Breiðablik
10. maí Stjarnan - HK
15. maí HK - ÍBV
20. maí KR - HK

Sjá einnig:
Hin hliðin - Brynjar Jónasson
Niðurtalningin: HK - Leifur Andri og Hörður Árna

Leikmenn HK sumarið 2019:
Arian Ari Morina
Arnar Ólafsson
Arnþór Ari Atlason
Aron Kári Aðalsteinsson
Ásgeir Börkur Ásgeirsson
Ásgeir Marteinsson
Atli Arnarsson
Birkir Valur Jónsson
Bjarni Gunnarsson
Björn Berg Bryde
Brynjar Jónasson
Emil Atlason
Guðmundur Axel Blöndal
Guðmundur Þór Júlíusson
Hafsteinn Briem
Hörður Árnason
Hörður Máni Ásmundsson
Kári Pétursson
Leifur Andri Leifsson
Máni Austmann Hilmarsson
Ólafur Örn Eyjólfsson
Sigurður Hrannar Björnsson
Valdimar Einarsson
Valgeir Valgeirsson
Viktor Bjarki Arnarsson

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Arnar Helgi Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson, Daníel Geir Mortiz, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Magnús Már Einarsson, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir
banner