Atli Sigurjónsson leikmaður Þórs er vongóður um að liðið fari í úrslit Valitors-bikarsins og mæti þar KR.
Dregið var í undanúrslit í dag þar sem Þór mun fá ÍBV í heimsókn.
Dregið var í undanúrslit í dag þar sem Þór mun fá ÍBV í heimsókn.
,,Við vonuðumst eftir heimaleik, við erum mjög sáttir," sagði Atli í samtali við Fótbolta.net.
,,Við tókum þá um daginn og það ætti að vera lítið mál að taka þá aftur."
,,Það er nokkurn veginn búinn að skrifa þetta fyrir okkur að við förum í úrslitaleikinn á móti KR."
Nánar er rætt við Atla í sjónvarpinu hér að ofan.





















