Óskar Pétursson, markvörður Grindavíkur, vann um helgina söngkeppni framhaldsskólanna ásamt félögum sínum í karlakór Sjómannaskólans. Óskar var einn besti markvörður Pepsi-deildarinnar í fyrra og er greinilega margt til lista lagt.
Óskar var í viðtali í Boltanum á X-inu FM 97,7 í dag en nú er hægt að nálgast upptöku af þættinum.
Þá var Jón Björn hjá karfan.is í viðtali um leik Grindavíkur og Þórs frá Þorlákshöfn í kvöld og farið var yfir það helsta sem gerðist í Evrópufótboltanum um liðna helgi.
Nú er hægt að hlaða niður MP3 skrá af þættinum hér á Fótbolta.net.
Smelltu hér til að sækja MP3 skrá af þættinum.


