Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. ágúst 2012 20:45
Magnús Guðmundsson
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Kynþáttahyggja í Breiðholti?
Magnús Guðmundsson
Magnús Guðmundsson
Mynd: Slava Titov
Mynd: Slava Titov
Mynd: Fótbolti.net
Mynd: Fótbolti.net
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á föstudaginn fór fram mikilvægur leikur hjá mínum mönnum úr Leikni í Breiðholti. Leiknismenn berjast fyrir veru sinni í næst efstu deild eftir grátlegt gengi í sumar og í þetta sinn fengu þeir Víkinga frá Ólafsvík í heimsókn. Þessi lið hafa marga hildina háð innan vallar í gegnum tíðina en þó ávallt með virðingu og vináttu.

Núna um helgina birtust fréttir af leikskrá sem Leiknismenn gerðu fyrir leikinn. Leikskráin sem aldrei fór í dreifingu var að mati sumra í fordómafyllri kantinum vegna þess að í stað merkis Víkinga frá Ólafsvík var sett merki knattspyrnusambands Bosníu og Hersegóvínu. Víkingar gerðu athugasemd við þetta við eftirlitsdómarann sem greip víst strax inn í og lét Leiknismann fjarlægja hana úr dreifingu.

Síðastliðin misseri hafa verið okkur í efra Breiðholti erfið. Allir áhugamenn um knattspyrnu þekkja sögu okkar vel. Fyrrum þjálfari okkar, Sigursteinn "goðsögn" Gíslason, var látinn fara sem og Garðar Gunnar Ásgeirsson sem stýrði liðinu í fjarveru Sigursteins. Leiknismenn tókust á innan vallar sem utan út af þeirri ákvörðun og logaði okkar litli fjölskylduklúbbur í stutta stund.

Fjölmiðlar birtu fréttatilkynningar sem voru skeggræddar í þaula og sitt sýndist hverjum. Ráðinn var hinn geðþekki Zoran Miljkovic sem tókst á undraverðan hátt að snúa gengi liðsins við og sameina Leiknisfjölskylduna. Sigursteinn lést svo eftir hetjulega baráttu og fráfallið fékk á strákana sem ekki bara dáðu hann sem þjálfara heldur fyrirmynd á vígvelli knattspyrnunnar og jafnvel lífsins alls.

Zoran hélt aftur utan og vildu flestir Leiknismenn fá hann aftur en Kolbeinn kafteinn þótti of dýr.

Willum Þór var ráðinn og þá glöddust flestir. Hákarlinn og reynsluboltinn var sestur við stýri skútunnar og treystu allir á það að núna væri nýtt upphaf. Nýjir leikmenn komu til liðsins og vorið var ljúft. Gengið í sumar hefur svo verið vægast sagt slakt og ríkir andleysi í áhorfendastúku félagsins. Klúbburinn er særður og má við litlu mótlæti. Umræðan um leikskránna hefur haft neikvæð áhrif á félagið og ásakanir um kynþáttahyggju eða rasisma eins og það var kallað særir alla alvöru Leiknismenn.

Ég hef það fyrir staðreynd að framkvæmdastjóri klúbbsins ritaði leikskránna. Hann hefur í þrjá áratugi búið í bakgarði Leiknisvallarins og séð sól félagsins rísa og hníga. Við sóttum æfingar saman þegar aðstaða félagsins var vægast sagt hræðileg og æfingasvæðið kallað "þúfugrasið". Margt vatn hefur runnið til sjávar hjá félaginu og samfélaginu okkar öllu. Þegar við ólum manninn var varla nýbúi búsettur í hverfinu og man ég bara eftir einni konu sem var frá Póllandi.

Núna er yfir 50% nemenda í sumum menntastofnunum okkar af erlendu bergi brotin. Það er því eldfimt að segja að skrif framkvæmdastjóra okkar beri vott af kynþáttahyggju. Sérstaklega í ljósi þess að hann hefur þjálfað tugi ef ekki hundruði nýbúa búsetta í Breiðholti. Knattspyrnuhreyfingin um víða veröld hefur skorið upp herör gagnvart kynþáttahatri og blásið til stórra forvarnarátaka gegn því. Umfjallanir um orðaskipti frægra knattspyrnumanna hafa hrist upp í hlutunum og fengið leikmenn til að hugsa sinn gang.

Ungir leikmenn Leiknis hafa sökum uppruna síns orðið fyrir kynþáttahatri og háðsglósum sem varla eru prenthæfar. Menntastofnanir, æskulýðsstarfsmenn, þjálfarar og foreldrar hafa verið að fræða ungviði hverfisins um fordóma og rembst við að útrýma þeim. Þar hefur framkvæmdastjóri félagsins leikið stóra rullu. Ég hef sjálfur heyrt hann tala af alúð um þennan málaflokk og veit að eyðing fordóma er honum hugleikin. Hann kom nýlega fram í viðtali á Stöð 2 þar sem hann var með uppbyggilega umræðu eftir átakanlegt atvik sem átti sér stað í leik í yngri flokkum félagsins.

Því get ég ekki setið aðgerðalaus þegar jafn stór orð hafa flogið.

Ég þori að fullyrða að með leikskránni var ekkert illt meint. Þarna var einfaldlega kaldhæðnisleg kímni sem var óviðeigandi að mati margra alveg eins og sumum finnst ekki viðeigandi að við Leiknismenn köllum óvini okkar í ÍR - jr. Eða hvað þá að við köllum okkur stolt Breiðholts. Ég er ekki að afsaka skrifin með neinum hætti. Þau voru mögulega ósmekkleg að mati margra og þykir öllum Leiknismönnum það miður ef þau særðu einhvern. Leikskráin fór aldrei í birtingu og því skaðinn í lágmarki.

Umræða um fordóma er holl en ásakanir um rasisma eru eldfimar. Ég veit vel að vinir okkar í Víkingi frá Ólafsvík vita að við búum í risa stóru fjölmenningarsamfélagi hér í efri byggðum þar sem félagsauður er lítill. Við kjósum að búa hérna í fjölmenningarsamfélagi og okkur unir vel við nágranna okkar. Við gerum stundum grín að því okkar á milli að yngri flokkar okkar séu lítil afsprengi frá stórum klúbbum í austur Evrópu þar sem leikmenn eru í stórum stíl nýbúar. Áður en varir mun meistaraflokkur okkar prýða fjölmarga leikmenn af erlendum uppruna sem eru að blómstra núna í yngri flokkunum okkar. Þar þjálfar þá framkvæmdastjórinn og geri það af natni og stöku einlægni.

Hann virðir sína leikmenn og kappkostar að skapa félagsauð meðal einstaklinga af ólíkum uppruna þar sem tungumálaörðuleikar eru daglegt brauð. Hann er ekki hlynntur kynþáttahyggju frekar en neinn Leiknismaður því slíkt er ekki liðið. Ég sem stuðningsmaður veit að klúbburinn ákvað af sinni einskæru góðmennsku að þegja yfir máli fingralangs leikmanns af erlendum uppruna sem lék með meistaraflokki okkar.

Þetta hafa þeir án efa gert til að eyðileggja ekki feril þessa góða knattspyrnumanns. Hefðu þeir átt það á hættu að vera sakaðir um fordóma ef þeir hefðu uppljóstrað um málið?

Við Leiknismenn berum hlýjar tilfinningar til vina okkar frá Ólafsvík sem hafa haldist í hendur við okkur í uppvexti klúbbana frá því að við komum saman úr 3. deildinni. Þeir hafa verið á svaka flugi og er greinilega haldið vel utan um hlutina hjá þeim. Ég vona innilega að þessi umræða hverfi jafn fljótt og hún spratt upp og vinátta klúbbana beri ekki hnekki.

Stöndum saman um að eyða fordómum en vörum okkur á umræðunni.

Með bestu kveðju.

Magnús Guðmundsson
Tómstundafræðingur og stoltur Leiknismaður.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner