Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   sun 12. mars 2017 18:00
Kristófer Kristjánsson
Myndband: Ungur Selfyssingur með glæsilegt mark
Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Fjölnir og Selfoss mættust í Lengjubikarnum í gær í Egilshöllinni en leiknum lauk með 4-2 sigri Selfyssinga.

Hinn 19 ára Kristinn Sölvi Sigurgeirsson skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins um 20 sekúndur og var það ekki af verri endanum.

Eftir að hafa fengið boltann á eigin vallarhelming, keyrði hann upp vinstri vænginn, framhjá tveimur Fjölnismönnum áður en hann þrumaði boltanum í samskeytin fjær og inn.

Sjón er sögu ríkari en markið má sjá hér að neðan sem og öll önnur mörk í leiknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner