
Líklega hafa aldrei verið jafnmargir leikmenn íslenska landsliðsins á meiðslalistanum á sama tíma. Tíu leikmenn verða fjarri góðu gamni gegn Belgum á morgun vegna meiðsla.
Þar á meðal eru margir lykilmenn í liðinu undanfarin ár. Fótbolti.net setti saman draumalið úr þessum meiddu leikmönnum.
Spilað er 3-5-2 en þar sem enginn markvörður er á meiðslalistanum fær Frederik Schram að vera í markinu. Frederik var í HM hópnum í sumar en hann er ekki í íslenska landsliðshópnum að þessu sinni.

Sjá einnig:
Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Belgíu - Mörg spurningamerki
Athugasemdir