Arna Sif Ásgrímsdóttir er einn yngsti leikmaður Landsbankadeildarinnar í ár aðeins 14 ára að aldri. Arna hefur verið að spila vel inn á miðju Þór/KA og þrátt fyrir ungan aldur hefur hún verið í byrjunarliði liðsins nánast frá fyrsta leik. Arna Sif spilaði 2 leiki fyrir u-17 ára landsliðið á þessu ári.
Það er því við hæfi að þessi unga og efnilega knattspyrnukona sýni á sér hina hliðina.
Það er því við hæfi að þessi unga og efnilega knattspyrnukona sýni á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Arna Sif Ásgrímsdóttir
Gælunafn: Arna, kjúlli
Aldur: 14 ára. En verð 15 núna 12.ágúst
Gift / sambúð? Nei
Börn: Nei
Hvað eldaðir þú síðast? Spagettí
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Skinu og pepperoni
Hvernig gemsa áttu? E-ð nokia drasl
Uppáhaldssjónvarpsefni? Greys Anatomi,One Tree Hill og Nágrannar
Besta bíómyndin? Napolian Dinamite
Hvaða tónlist hlustar þú á? Það er eiginlega bara misjafnt
Uppáhaldsútvarpsstöð: 95,7
Uppáhaldsdrykkur: Sykurskertur eplasvali
Uppáhalds vefsíða: klárlega fótbotli.net
Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Nei
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Vera alltaf að hlaupa fyrir hann og spila fast
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Aldrei að segja aldrei! Þegar ég var yngri sagðist ég aldrei ætla að spila með KA. En nú spilar maður með sameiginlegu liði Þórs og KA
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Michael Owen
Erfiðasti andstæðingur? Vanja í Val
Ekki erfiðasti andstæðingur? Eva systir í reit, jésus
Besti samherjinn? Rakel Hönnudóttir
Sætasti sigurinn? Þegar við unnum Fylki 3-2 núna í sumar
Mestu vonbrigði? Þegar ég meiddist viku fyrir Noregsferðina með U-17
Hvað er þitt uppáhaldslið í enska boltanum? Liverpool
Uppáhalds knattspyrnumaðurinn/konan ? Hermann Hreiðarsson, Margét Lára Viðarsdóttir og Edda Garðarsdóttir
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn/konana fyrr og síðar? Eiður Smári og Margrét Lára
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins? Andri Heiðar Ásgrímsson [Þór] og Sara Björk Gunnarsdóttir [Haukum]
Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Þrátt fyrir að vera ekki í deildinni þá er Magnús Blöndal í KA lang fallegastur, kóngurinn sjálfur
Fallegasta knattspyrnukonan? Jaa nú veit ég ekki
Grófasti leikmaður deildarinnar? Elva Mary og Selma hjá Þór/KA koma sterkelga til greina
Besti íþróttafréttamaðurinn? Hörður Magnússon og Jón Stefán Jónsson
EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Veit ekki um neinn
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Anna Elvíra Þórisdóttir, hún er agaleg!
Hefurðu skorað sjálfsmark? Ekki í leik nei en á æfingu já
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Uhm í 6.flokki var ég að keppa á Pæjumótinu á Siglufirði. Ég var að keppa með eldri systir minni og það var alltaf einhver rígur á milli okkar.Svo fengum við víti og þjálfarinn sagði systir minni að taka það og þá fór ég í fýlu og sparkaði að krafti í rassinn á henni og fór að grenja
Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Nei
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Það var laugardaginn 17.mars 2007 gegn FH í bikar
Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Snilld
Kíkir þú oft á Fótbolti.net? daglega
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Held að þetta sé bara fínt svona
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Muse
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Tapa þegar við spilum ungar-gamlar
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Kristrún Lilja Daðadóttir þjálfari U-17
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Heima er best
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Ahh það tekur smá tíma
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Aðalbjörn Hannesson
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já , þá aðallega handbolta
Hver er uppáhalds platan þín? Engin sérstök
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Ég er ekki með aldur í það, þannig að ég hef aldrei borgað mig inná leik
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Copa Mundial
Í hverju varstu/ertu lélegust í skóla? Samfélagsfræði
Hvað langar þig að taka þér fyrir hendur þegar knattspyrnuferlinum lýkur? Þjálfa e-ð stórlið hehe
Athugasemdir