Trausti Björn Ríkharðsson, fyrirliði ÍR, var ánægður eftir 4-1 sigur liðsins gegn Fjarðabyggð í dag.
,,Þetta var vinnslusigur eins og sumrarnir í sumar. Við spiluðum fínan bolta á köflum en við eigum samt eftir að detta almennilega í gang finnst mér. Þetta var sterkur sigur samt sem áður á móti sterku liði," sagði Trausti Björn við Fótbolta.net eftir leik.
ÍR er eftir sigurinn með þriggja stiga forskot á toppnum í fyrstu deildinni.
,,Við finnum ekki fyrir neinni pressu, við erum að taka þetta í köflum eins og Laugi (Guðlaugur Baldursson) er búnn að tala um."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























