Sigríður Þóra Birgisdóttir skoraði sigurmark Aftureldingar gegn Haukum í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Aftureldingu var spáð falli fyrir mót en liðið hefur blásið á allar hrakspár og er komið með tíu stig eftir sigurinn í kvöld.
,,Við vissum alveg hvað við gátum fyrir mót og við erum búin að vera að sýna það og koma öllum öðrum á óvart," sagði Sigríður Þóra.
,,Við erum ekkert að fara að falla og þessir spádómar gefa ekki rétta mynd af liðinu okkar þannig að ég er mjög bjartsýn."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |





















