,,Ég er mjög sáttur, mér fannst við vera betra liðið í þessum leik," sagði Hjörtur Logi Valgarðsson bakvörður FH sem vann 3-2 sigur á KR í Kaplakrikanum í dag.
,,Mér fannst við eiga að klára þetta í fyrri hálfleik. Við fengum fín tækifæri til þess. Við gerðum þetta kannski full spennandi í lokin en mér fannst þetta mjög sanngjarn sigur."
,,Ég er mjög ánægður með það (markið) og mjög ánægður með að hafa unnið. En já, þetta var sætt mark sem ég skoraði þarna."
,,Það sló okkur svolítið út af laginu að fá okkur þetta mark en svo fengum við þetta víti sem var mjög gott því þá efldumst við aftur."
Nánar er rætt við Hjört Loga í sjónvarpinu hér að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
























