,,Keflvíkingarnir eru með hörkulið og pressuðu okkur vel í seinni hálfleik en eitt stig er allt í lagi," sagði Ólafur Örn Bjarnason spilandi þjálfari Grindvíkinga eftir 1-1 jafntefli gegn Keflavík í kvöld.
Ólafur Örn kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik í dag en verður hann í byrjunarliðinu um næstu helgi?
,,Ég veit það ekki, það verður bara að sjá hvernig menn koma undan Verslunarmannahelginni."
Félagaskiptaglugginn lokar um næstu helgi en óvíst er hvort að Grindvíkingar muni styrkja sig fyrir þann tíma.
,,Ef við finnum leikmenn sem geta komið beint inn í liðið þá kannski skoðum við það en við fáum ekki leikmenn til að fylla upp í einhvern hóp."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.





















