,,Þetta var frábær sigur og frábær stig. Mér fannst leikurinn þróast þannig að við áttum kannski ekki mikið skilið út úr fyrri hálfleiknum, skelfilega lélegir og mjög opnir og þeir fengu mikið af færum," sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis eftir 0-2 sigur á ÍR í Breiðholtinu í kvöld.
,,Þeir náðu að skora eftir tvö mörk í fyrri hálfleik sem voru dæmd af vegna rangstöðu en við náðum að komast yfir með góðu marki. Við lendum svo manni færri í seinni hálfleik en gríðarleg barátta, vinnusemi og karakter skilaði þremur góðum stigum."
,,Það voru að minnsta kosti tvö móment þarna þar sem mér fannst brotið á Vida og Pétur kominn einn í gegn en þá stoppar hann leikinn útaf leikaraskap hjá honum og spjaldar hann. Sömuleiðis fannst mér brotið á Einari inni í teig en hann spjaldar hann og endar svo með tvö gul. Þetta fannst mér í ódýrari kantinum og endaði svo sjálfur með spjald líka en svona gengur þetta bara. Ég kallaði bara 'hey hvað er að gerast' og fékk spjald fyrir það. Maður verður bara að læra hvað má segja í þessu."
Nánar er rætt við Ásmund í sjónvarpinu að ofan.























