Útvarpsþátturinn Fótbolti.net sem var á X-inu 977 milli 12:00 og 14:00 í fyrradag er nú kominn á netið þar sem hægt er að hlaða niður mp3 skrá af honum.
Þátturinn var nánast tileinkaður lokaumferðinni í Pepsi-deildinni sem fór fram í fyrradag. Víðir Róbertsson stuðningsmaður ÍBV var í viðtali sem og Egill "Gillz" Einarsson stuðningsmaður Breiðabliks. Guðlaugur Baldursson, þjálfari ÍR, rýndi í leikina og Hjörvar Hafliðason fór yfir enska boltann.
Nú er hægt að hlaða niður MP3 skrá af þætti laugardagsins hér á Fótbolta.net.
Hjörvar Hafliðason (Sérfræðingur), Egill "Gillz" Einarsson (Stuðningsmaður Breiðabliks), Víðir Róbertsson (Stuðningsmaður ÍBV), Hjörvar Hafliðason (Sérfræðingur)
Smelltu hér til að sækja MP3 skrá af þættinum.


