,,Glæsilegur sigur, 2-1 og við erum náttúrulega yfir núna. Þeir verða að sækja í seinni leiknum og þá opnast þetta allt," sagði Bjarni Þór Viðarsson fyrirliði U21 árs landsliðs Íslands eftir 2-1 sigur á Skotum á Laugardalsvelli í kvöld.
,,Þeir voru mjög þéttir fyrir í vörninni og sérstaklega þegar við vorum að gefa fyrir og svona. Þetta verður allt opið í seinni leiknum."
,,Það var dálítið erfitt að lenda 1-0 undir en við komum til baka og sýndum gríðarlegan karakter. Hefðum átt að setja fleiri."
,,Við erum búnir að vinna mikið í hvernig við ætlum að spila sóknarlega. Reyna að taka sem fæstar snertingar, fara á kantana og koma honum fyrir. Það gekk upp, kannski ekki fyrsta korterið en þegar við fundum út hvaða taktík þeir voru að spila þá fór þetta að ganga mjög vel upp."
Bjarni var nærri því að skalla í netið í fyrri hálfleiknum.
,,Gylfi var eitthvað að þvælast fyrir, hann er ótrúlegur. Svo fékk ég aftur tækifæri en var ekki með nógu langa löppp."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.























