Magnús Már Einarsson skrifar frá Edinborg
,,Þetta er bara algjör snilld. Við ætluðum áfram og við gerðum það. Ég veit ekki hvað ég á að segja, þetta er algjört rugl," sagði Jóhann Berg Guðmundsson leikmaður U21 árs landsliðsins eftir að Ísland lagði Skota 2-1 í kvöld og tryggði sér sæti á EM á næsta ári.
Gylfi Þór Sigurðsson kom Íslendingum yfir á 74.mínútu en Christopher Maguire jafnaði með skoti beint frá miðju yfir Arnar Darra Pétursson í markinu.
,,Þetta var svolítið mikið sjokk eins og Arnar Darri myndi orða það. Þetta var mjög gott skot og enginn bjóst við þessu en við komum tilbaka og kláruðum þetta."
Lokakeppni EM fer fram í Danmörku í júní á næsta ári og Íslendingar verða þar á meðal þáttökuliða.
,,Við ætlum ekki að fara á EM og vera bara með. Við ætlum að gera góða hluti þar og koma öðrum á óvart," sagði Jóhann Berg sem er á því að U21 árs landsliðið sé besta yngri landslið sem Íslendingar hafa átt.
,,Ef einhver neitar því þá er eitthvað að honum. Þetta er langbesta landslið sem hefur komið upp."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















