Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
   sun 01. maí 2016 20:16
Gabríel Sighvatsson
Gulli Jóns: Getum lært af þessum leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst við byrja leikinn ágætlega, en svo vorum við komnir 2-0 og það er náttúrulega ekki byrjun sem við ætluðum að byrja í þessum leik,“ sagði Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, eftir 4-0 tap liðsins gegn ÍBV í dag.

ÍA byrjar Pepsi-deildina svo sannarlega ekki vel, en Gulli vildi meina að brekkan hafi verið brött eftir þriðja mark Eyjamanna.

Lestu um leikinn: ÍBV 4 -  0 ÍA

„Þeir komast á lagið og gera svo þriðja markið eftir 36 mínútur. Brekkan er orðin ansi brött eftir það og það gekk illa að klífa hana í seinni hálfleik þó við vissulega reyndum.“

Skagamenn eiga Íslandsmeistara FH í næsta leik og Gulli er farinn að huga að þeim leik.

„Við getum lært af þessum leik, en það er náttúrulega bara næsti leikur að sjálfsögðu. Mótið er náttúrulega bara rétt að byrja, en vissulega ekki sú byrjun sem við ætluðum okkur.“

ÍA styrkti sig ekki mikið í vetur, en aðspurður hvort hann sé ánægður með hópinn svaraði Gulli því játandi.

„Ég er ámægður með þennan hóp, en það verður bara að koma í ljóst hvort við munum styrkja okkur eitthvað frekar.“
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner