Næstu þrír leikir ráða framtíð Amorim - Glasner, Southgate, Silva og Iraola orðaðir við Man Utd - Liverpool horfir til Araujo
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
Bjarni Guðjón: Það er gaman að vera Þórsari í dag
„Fullyrði að ekki nokkur leikmaður hefur bætt sig jafn mikið eftir þrítugt"
Rúnar: Þá tekur þú ekki besta leikmanninn í liðinu útaf
Hallgrímur Mar: Getum engum öðrum en sjálfum okkur um kennt
Heimir: Þeir voru að svæfa leikinn og komust upp með það
Jón Daði: Þarf að komast í burtu frá fótbolta og hreinsa hugan
   mið 01. júní 2016 20:45
Hafliði Breiðfjörð
Osló
Lars: Verð hissa ef við sjáum ekki gamla Ísland í Frakklandi
Icelandair
Lars á vellinum í kvöld.
Lars á vellinum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lars Lagerback, landsliðsþjálfari, var svekktur með fyrri háfleikinn í 3-2 tapi gegn Norðmönnum í kvöld.

„Við erum að undirbúa okkur. Við vorum með leikmenn sem hafa ekki spilað í langan tíma en það er ekki afsökun. Í fyrri hálfleik spiluðum við ekki eins og lið eins og við eigum að gera," sagði Lars við Fótbolta.net eftir leik.

„Þó að við höfum ekki undirbúið okkur eins og vanalega þá eiga leikmenn að minnsta kosti að nota hausinn og vita hvernig við spilum. Það voru vonbrigði í fyrri hálfleik en mér fannst þetta aðeins betra í síðari hálfleik."

Lestu um leikinn: Noregur 3 -  2 Ísland

Þrátt fyrir tap og slaka frammistöðu lengi vel þá hefur Lars ekki áhyggjur fyrir EM.

„Alls ekki. Það voru jákvæðir hlutir. Við snérum frammistöðunni aðeins við í seinni hálfleik. Ég er mjög ánægður með að Aron spilaði næstum heilan leik. Við tókum hann út af í lokin svo hann myndi ekki eiðast. Við hefðum getað látið Kolla spila aðeins meira en við vildum ekki drífa hann inn. Hann er byrjaður að æfa á fullu."

„Við vildum ekki að Hannes og Kári spiluðu þennan leik því þeir eru með smávægileg vöðva meiðsli. Frá og með morgundeginum ættu allir leikmenn að vera byrjaðir að æfa á fullu. Við lærum af þessum leik og ég verð mjög hissa ef við sjáum ekki gamla Ísland í Frakklandi."


Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner