Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
   fös 01. september 2017 14:50
Hafliði Breiðfjörð
Tampere
Ring leikmaður Finnlands: Orðlaus, reiður og vonsvikinn
Icelandair
Alexander Ring á fréttamannafundi í dag en eftir hann spjallaði hann við Fótbolta.net um leikinn á morgun og leikinn í fyrra.
Alexander Ring á fréttamannafundi í dag en eftir hann spjallaði hann við Fótbolta.net um leikinn á morgun og leikinn í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Finnar voru mjög ósáttir við sigurmark Íslands í Laugardalnum og mótmæltu hástöfum.
Finnar voru mjög ósáttir við sigurmark Íslands í Laugardalnum og mótmæltu hástöfum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég sá Víkingaklappið í sjónvarpinu en ég geri fastlega ráð fyrir að stuðningsmenn okkar munu yfirgnæfa það.''
,,Ég sá Víkingaklappið í sjónvarpinu en ég geri fastlega ráð fyrir að stuðningsmenn okkar munu yfirgnæfa það.''
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við viljum svara fyrir það sem gerðist í fyrri leiknum þar sem mér fannst við verðskulda sigurinn," sagði Alexander Ring leikmaður finnska landsliðsins við Fótbolta.net í dag aðspurður um leikinn gegn Íslandi í undankeppni HM 2018 á morgun.

Ísland vann fyrri leikinn 3-2 en eftir að hafa verið undir þegar venjulegum leiktíma lauk jöfnuðum við metin og skoruðum svo sigurmörk sem mikil áhöld eru uppi um hvort hafi verið löglegt.

„Það er okkur enn í fersku minni og núna spilum við á okkar heimavelli og viljum gefa stuðningsmönnum okkar þrjú stig og vinna leikinn," sagði Ring en er efst í huga þeim að hefna sín gegn Íslandi?

„Nei, ég myndi ekki segja það. Auðvitað er þetta enn í huga okkar en fyrir okkur er þetta bara næsti leikur í riðlinum. Við eigum ekki að gera of mikið úr þessu en við munum eftir þessu og sér í lagi núna þegar við erum að fara að mæta þeim aftur og því væri gott að svara fyrir sig."

Ég er 100% sammála þér!
Finnar voru að vonum ósáttir við sigurmark Íslands í lokin þar sem boltinn virtist ekki fara inn fyrir marklínuna eftir marktilraun Ragnars Sigurðssonar en boltinn endaði svo í netinu eftir að brotið var á markverði þeirra. En hvernig var líðanin eftir leikinn?

„Þetta var blanda af mörgu, maður varð orðlaus, reiður og vonsvikinn eins og gefur að skilja. Mér fannst við verðskulda meira en við fengum út úr leiknum en svona er fótboltinn. Stundum er maður er maður hinum megin í svona atvikum og núna viljum við verða liðið sem verður ánægt í leikslok," sagði Ring og þegar fréttamaður sagðist sammála honum um að þetta hafi aldrei verið mark svaraði hann: „Já ég er 100% sammála þér!"

Hahaha ég veit þú vilt fá svar við þessu
Finnar hafa verið að stækka liðið sitt með hávaxnari mönnum og búist er við að þeir spili harðari bolta en síðast. En hvað ætla þeir að gera, sækja eða verjast?

„Hahaha, ég veit að þú vilt fá svar við þessu, þú kemst að því á morgun. Kannski geturðu fengið þjálfarann til að svara þessu en ekki mig," svaraði hann en verður þetta ekki líkamlegri barátta?

„Íslenska liðið er líkamlega sterkt lið í heild sinni en við verðum að mæta því. En þetta kallast fótbolti svo við verðum líka að spila boltanum. Mér fannst við standa okkur vel fram að 89. mínútu í fyrri leiknum en svo sjáum við til á morgun. Við hlökkum til."

Ring spilaði með Jóni Daða Böðvarssyni hjá Kaiserslautern í Þýskalandi og þegar við spurðum hann hvaða leikmenn verði hættulegastir í íslenska liðinu minntist hann á gamla félaga sinn.

„Ég þekki Jón Daða því við spiluðum saman í Þýskalandi. Hann er auðvitað góður leikmaður og það sama má segja um Gylfa Sigurðsson sem allir þekkja. En það eru ekki bara þeir því þið eruð með mjög gott lið í heild og ég held að við munum ekkert einbeita okkur að neinum sérstökum leikmönnum."

Okkar stuðningsmenn munu yfirgnæfa Víkingaklappið
Völlurinn í Tampere tekur um 16 þúsund manns í sæti. Síðast þegar fréttist var ekki enn uppselt en búist er við 2-3 þúsund íslenskum stuðningsmönnum. Við minntum Ring á að hann fái að heyra Víkingaklappið, HÚH, á morgun.

„Ég sá þetta í sjónvarpinu en ég geri fastlega ráð fyrir að stuðningsmenn okkar munu yfirgnæfa það," sagði Ring hress að lokum.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
Athugasemdir
banner
banner