Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fór í viðtal við RÚV og segir mikilvægt að Íslendingar læri af þeim skandal sem hefur verið í kringum KSÍ.
Breska ríkisútvarpið og fleiri erlendir miðlar hafa fjallað um ástandið í íslenskum fótbolta og vitna í ummæli Katrínar. Hér má sjá frétt BBC.
Breska ríkisútvarpið og fleiri erlendir miðlar hafa fjallað um ástandið í íslenskum fótbolta og vitna í ummæli Katrínar. Hér má sjá frétt BBC.
Katrín segir dapurlegt að fylgjast með þeirri atburðarás innan knattspyrnuhreyfingarinnar undanfarna daga sem tengist þöggun og uppljóstrun á ofbeldismálum landsliðsmanna.
„Það er dapurlegt að fylgjast með þessari atburðarás en um leið segi ég það að mér finnst virðingarvert að stjórnin hefur núna stigið til hliðar. Það gefur öðrum svigrúm til að taka á þessum málum af festu, sem eru meinsemd, og hafa ekki bara verið að koma upp í knattspyrnuhreyfingunni heldur miklu víðar í samfélaginu. Við þurfum að þora að takast á við kynferðislegt og kynbundið ofbeldi," segir Katrín en nánar má lesa ummæli hennar á vef Fréttablaðsins.
Athugasemdir