Mallorca 4 - 1 Sevilla
1-0 Vedat Muriqi ('26 , víti)
1-1 Neal Maupay ('45 )
2-1 Samu ('53 )
3-1 Sergi Darder ('74 )
4-1 Pablo Torre ('90 )
1-0 Vedat Muriqi ('26 , víti)
1-1 Neal Maupay ('45 )
2-1 Samu ('53 )
3-1 Sergi Darder ('74 )
4-1 Pablo Torre ('90 )
Vedat Muriqi skoraði og lagði upp í 4-1 sigri Real Mallorca á Sevilla í La Liga á Spáni í kvöld.
Framherjinn hefur verið sjóðandi heitur með Mallorca á tímabilinu en hann skoraði sitt 15. deildarmark úr vítaspyrnu á 26. mínútu og er nú annar markahæstur í deildinni. Neil Maupay, sem kom til Sevilla á dögunum, jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks en það reyndist eina mark Sevilla í leiknum.
Samu Costa kom Mallorca yfir á 53. mínútu eftir að tilraun Jan Virgili skilaði sér á fjærstöngina.
Sergi Darder og Pablo Torre gerðu út um leikinn á síðasta stundarfjórðungnum. Darder getur að vísu þakkað Muriqi fyrir en hann þrumaði boltanum í Darder og þaðan í netið. Skemmtileg fyrsta stoðsending Muriqi á tímabilinu.
Muriqi, sem er 31 árs gamall, verður eflaust eftirsóttur eftir þetta tímabil, en þrátt fyrir magnaða einstaklingsframmistöðu er Mallorca aðeins í 14. sæti með 24 stig eins og Sevilla.
Athugasemdir



