„Við erum þakklátir fyrir þessi þrjú stig í dag. Þau voru erfið að sækja gegn besta Framliði sem ég hef séð í deildinni í sumar," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir nauman sigur gegn Fram í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 3 - 2 Fram
„Við vorum heppnir að ná að klára þennan leik því þetta var mjög kaflaskipt. Við lékum vel til að byrja með en menn voru ósáttir við markið sem við fengum á okkur og þá kom pirringur. Það mark braut aðeins móralinn niður."
KR-ingar vildu fá dæmda aukaspyrnu í aðdragandanum að markinu þegar Fram jafnaði í 1-1.
„Þorsteinn Már kemur inn hjá okkur í hálfleik og gerir frábæra hluti, skorar jöfnunarmarkið og fiskar svo vítaspyrnu."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir























