„Gæti ekki verið sáttari, hrikalega flottur leikur hjá þeim og fengu bara það sem þær verðskulduðu núna." sagði Pálmi Rafn, þjálfari KR eftir 7-0 sigur á Augnablik í dag.
Hvað gerðuði vel í leiknum?
„Það var meira og minna allt, bæði varnarlega og sóknarlega. Við skorum þokkalega snemma á þær og nýtum færin vel í dag og erum á meðan samt öruggar tilbaka. Þegar líður á leikinn þá erum við öruggari í spilinu okkar og náum að halda honum mun betur. Heilt yfir bara mjög góður leikur og líka þær klára þetta í 90 mínútur eftir allt þetta mótlæti sem hefur gengið á í sumar, þá koma þær inn í leik og gera mjög vel."
Var ekkert mál að gíra sig upp í leikinn þótt liðið væri fallið fyrir leik?
„Nei þú hlýtur að hafa séð það, þær gerðu það mjög vel og voru bara klárar frá fyrstu mínútu."
Viðtalið má sjá í heild sinn hér að ofan






















