,,Þetta var allt í lagi. Það var frekar lágt tempó á leiknum en það var þægilegt fyrir hópinn að koma saman. Við höfum náð að fara yfir fullt af hlutum síðustu tíu dagana og það er jákvætt," sagði Gylfi Þór Sigurðsson eftir 1-0 sigurinn á Eistum í kvöld.
Leikmenn íslenska liðsins hafa oft verið grimmari í návígjum en í leiknum í kvöld. Gylfi spilaði sjálfur eftir að hafa misst af leiknum gegn Austurríki á föstudag vegna meiðsla sem hafa verið að hrjá hann undanfarnar vikur.
,,Ég held að það hafi verið mikilvægt fyrir flesta í hópnum að koma út úr þessu heilir. Persónulega er ég búinn að æfa þrisvar síðasta mánuðinn og það var fínt að koma út úr þessu heill heilsu. Nú getur maður tekið smá hvíld áður en maður byrjar að æfa aftur."
Guðlaugur Victor Pálsson og Ögmundur Kristinsson spiluðu sinn fyrsta landsleik í kvöld og fleiri leikmenn sem hafa spilað lítið fengu einnig tækifæri.
,,Það er kjörið tækifæri núna að gefa öðrum leikmönnum séns sem hafa verið í kringum hópinn. Það voru tveir sem spilðuðu sinn fyrsta landsleik og það er jákvætt."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
























