Chelsea fagnar marki. Liðið spilaði í dag í sérstökum búningum í tilefni að því að það eru 50 ár frá fyrsta sigri félagsins í FA-bikarnum.
Jordan Williams skoraði fyrir Fylde úr fimmtu efstu deild gegn Sheffield United úr úrvalsdeild. Hann mun eflaust gleyma því seint.
Chelsea er komið áfram í enska bikarnum eftir þægilegan 2-0 sigur á Nottingham Forest. Í heildina voru að klárast níu leikir núna fyrir stuttu og eru tveir leikir eftir í dag.
Frank Lampard, stjóri Chelsea, gerði níu breytingar á byrjunarliði sínu en mætti samt með nokkuð sterkt lið til leiks.
Callum Hudson-Odoi var staðráðinn í að nýta tækifærið og hann skoraði eftir aðeins sex mínútur. Miðjumaðurinn Ross Barkley bætti við öðru marki á 33. mínútu.
Ekki voru fleiri mörk skoruð og mjög svo þægilegur 2-0 sigur Chelsea staðreynd.
Chelsea er komið áfram í fjórðu umferð, en það sama er ekki hægt að segja um Tottenham sem þarf að mæta Middlesbrough, liði sem er í 16. sæti Championship-deildarinnar, aftur.
Tottenham hefur verið í veseni að undanförnu og gerði í dag 1-1 jafntefli við Middlesbrough eftir að hafa lent 1-0 undir. Lucas Moura skoraði jöfnunarmarkið.
Frekar óvænt úrslit í ljósi þess að Jose Mourinho, stjóri Tottenham, mætti inn í leikinn með sterkt byrjunarlið.
Sheffield United komst áfram með 2-1 sigri á Fylde úr fimmtu deild og þá unnu Wayne Rooney og félagar í Derby County óvæntan sigur á Crystal Palace.
Hér að neðan eru úrslitin í þeim leikjum sem voru að klárast.
Bristol Rovers 2 - 2 Coventry
1-0 Harris Jonson Clarke ('6 , víti)
1-1 Liam Walsh ('31 )
2-1 Tony Craig ('32 )
2-2 Tony Craig ('53 , sjálfsmark)
Burton Albion 2 - 4 Northampton
0-1 Nicky Adams ('10 )
0-2 Ryan Watson ('23 )
1-2 Ryan Edwards ('45 )
1-3 Charlie Goode ('45 )
1-4 Sam Hoskins ('70 )
2-4 Scott Fraser ('90 )
Charlton Athletic 0 - 1 West Brom
0-1 Kenneth Zohore ('32 )
Chelsea 2 - 0 Nott. Forest
1-0 Callum Hudson-Odoi ('6 )
2-0 Ross Barkley ('33 )
Crewe 1 - 3 Barnsley
0-1 Jacob Brown ('4 )
1-1 Paul Green ('48 )
1-2 Conor Chaplin ('75 )
1-3 Luke Thomas ('90 )
Crystal Palace 0 - 1 Derby County
0-1 Chris Martin ('32 )
Rautt spjald: Luka Milivojevic, Crystal Palace ('63)
Middlesbrough 1 - 1 Tottenham
1-0 Ashley Fletcher ('50 )
1-1 Lucas Moura ('61 )
QPR 5 - 1 Swansea
1-0 Jordan Hugill ('21 )
2-0 Bright Osayi-Samuel ('29 )
3-0 Jordan Hugill ('45 )
3-1 George Byers ('60 )
4-1 Lee Wallace ('76 )
5-1 Josh Scowen ('90)
Sheffield Utd 2 - 1 Fylde
1-0 Callum Robinson ('8 )
2-0 Leon Clarke ('60 )
2-1 Jordan Williams ('78 )
Klukkan 16:01 hefst grannaslagur Liverpool og Everton. Smelltu hér til að sjá byrjunarliðin.
Leikir kvöldsins:
16:01 Liverpool - Everton (Stöð 2 Sport)
18:16 Gillingham - West Ham (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir