Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   mið 15. apríl 2026 12:24
Elvar Geir Magnússon
Maguire reif kjaft og verður í banni gegn Chelsea
Maguire og Martínez verða í banni gegn Chelsea.
Maguire og Martínez verða í banni gegn Chelsea.
Mynd: EPA
Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, fær aukaleik í bann fyrir að rífa kjaft við fjórða dómarann í leik gegn Bournemouth. Hann verður því í banni gegn Chelsea um komandi helgi.

Maguire fékk rautt í leiknum gegn Bournemouth fyrir að ræna Evanilson upplögðu marktækifæri og tók út bann í tapinu gegn Leeds United á mánudag. Refsing hans hefur verið þyngd í tveggja leikja bann vegna óviðeigandi ummæla hans við einn úr dómarateyminu, fjórða dómarann Matt Donohue, þegar hann gekk af velli.

United verður einnig án Lisandro Martínez sem fer í þriggja leikja bann fyrir rauða spjaldið gegn Leeds.

Miðvarðapar United í leiknum gegn Chelsea á laugardag gæti því verið hinn tvítugi Leny Yoro og nítján ára gamli Ayden Heaven.

Manchester United er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og berst um Meistaradeildarsæti fyrir næsta tímabil.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 36 23 8 5 75 32 +43 77
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 36 17 8 11 50 46 +4 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
15 Crystal Palace 36 11 11 14 38 47 -9 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner