Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ætti að vera sáraeinfalt fyrir Grealish að velja næsta skref
Jack Grealish.
Jack Grealish.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Jack Grealish er að öllum líkindum á förum frá Manchester City í sumar. Hann er ekki í hópi liðsins fyrir HM félagsliða og það gefur sterka vísbendingu um það að framtíð hans liggur annars staðar.

Matt Law hjá Telegraph telur að það eigi að vera sáraeinfalt fyrir Grealish að ákveða næsta skref.

Law telur að það væri best fyrir Grealish að snúa aftur heim til Aston Villa, þaðan sem hann var seldur fyrir 100 milljónir punda til Man City.

Grealish er einn besti leikmaður í sögu Villa og leið honum alltaf vel í búningi félagsins. Núna þarf hann að koma sér aftur af stað og væri einhver annar staður betri fyrir hann?

Law nefnir þó að það hafi verið baulað á Grealish þegar hann mætti síðast á Villa Park og það hafi sært hann.

En það er erfitt að sjá annað en að Grealish verði tekið sem hetju ef hann ákveður að snúa aftur þangað þar sem þetta byrjaði allt saman. Villa er eitt af þeim félögum sem hefur áhuga á að krækja í Grealish.
Athugasemdir
banner
banner