Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 12:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ísland mætir Norður-Írlandi í Þjóðadeildarumspilinu - Sagan með Íslandi
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Dregið var í Þjóðadeildarumspilinu í dag og var Ísland í pottinum. Ísland spilar í umspili um að halda sæti sínu í A-deild eftir að hafa endað í 3. sæti í sínum riðli í A-deildinni.

Fyrrum landsliðsfyrirliðinn og leikjahæsti leikmaður kvennalandsliðsins frá upphafi, Sara Björk Gunnarsdóttir, hjálpaði við dráttinn. Sara dró Norður-Írland fyrst og svo Ísland.

Fulltrúi UEFA sagði við Söru að hún hefði ekki getað beðið eftir að draga Ísland, en viðureignin var sú fyrsta upp úr pottunum.

Ísalnd mætir Norður-Írlandi í umspilinu en Norður-Írland endaði í 2. sæti í sínum riðli í B-deildinni.

Sagan er með Íslandi í liði. Liðin hafa mæst fimm sinnum og Ísland hefur unnið alla leikina, síðast í mars 2020 þar sem Dagný Brynjarsdóttir skoraði eina markið í æfingaleik liðanna á Pinatar.

Áætlað er að leikirnir fari fram 24. og 28. október, fyrri leikurinn fer fram í Norður-Írlandi og sá seinni á Íslandi.

Belgía, liðið sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar, mætir Írlandi í sama umspili.
Athugasemdir
banner
banner