Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Albert orðaður við Everton - Moyes fékk Gumma á reynslu
Albert spilar á Hampden Park í kvöld.
Albert spilar á Hampden Park í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fór á reynslu til Preston á sínum tíma.
Fór á reynslu til Preston á sínum tíma.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristbjörg Ingadóttir.
Kristbjörg Ingadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingi Björn Albertsson.
Ingi Björn Albertsson.
Mynd: Úr einkasafni
Lék með Fiorentina í vetur.
Lék með Fiorentina í vetur.
Mynd: EPA
Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson ræddi í vikunni við breska fjölmiðilinn The i Paper á hóteli landsliðsins í Glasgow. Albert er þessa stundina að undirbúa sig fyrir vináttuleik Íslands og Skotlands sem fram fer á Hampden Park í kvöld.

Albert er orðaður við enska félagið Everton en David Moyes er stjóri liðsins. Í greininni um Albert er rifjað upp að David Moyes fékk Guðmund Benediktsson, föður Alberts, á reynslu til Preston á sínum tíma.

„Ég myndi ekki segja að það setji pressu á mig, að vera úr minni fjölskyldu," segir Albert í viðtalinu.

„Pabbi hélt alltaf að ég myndi elska fótbolta, svo ég fór snemma að leika mér í fótbolta og hér er ég."

„Ég myndi ekki kalla fjölskylduna mína fræga á Íslandi. Yfirleitt á Íslandi er fólk rólegt og afslappað, við erum ekki að hópast í kringum íþróttafólk eins og gerist annars staðar. Það gæti verið ein mynd, en ekkert meira en það."


Fyrrum landsliðskonan Kristbjörg Ingadóttir er móðir Alberts, Ingi Björn Albertsson er afi hans og Albert Guðmundsson, fyrsti atvinnumaður Íslands, er langafi hans.

„Mamma mín sagði mér allar sögurnar um langafa minn, svo ég var meðvitaður um það mjög snemma hvað hann gerði, hvernig hann var."

„Ég var alltaf á fótboltavellinum og þegar ég var heima þá var fótbolti í sjónvarpinu. Það hjálpaði mér að komast á þennan stað. Sonur minn er ekki kominn inn í fótboltann ennþá, hann er bara fjögurra ára, en gefum honum tíma."

„Af því að langafi minn spilaði á sínum tíma með Arsenal, þá vorum við vön að horfa á þá. Þegar ég var yngri þá horfði ég á alla leiki á meðan Wenger var stjóri. Arsenal spilaði oft fallegan fótbolta og ég elskaði það."

„Ég ætla ekki að segja að ég sé að reyna herma eftir ferlinum hans eða eitthvað þannig - mig langar ekki að spila á Englandi eða í Frakklandi af því hann spilaði þar. Ég er mjög hrifinn af úrvalsdeildinni og þess vegna langar mig að spila þar. Þetta snýst um minn eigin veg."


Hann var spurður út í nýliðið tímabil og sína framtíð. Lánssamningur hans við Fiorentina er að renna út og félagið hefur ekki tekið ákvörðun hvort það reyni að fá hann alfarið frá Genoa.

„Ég var alltaf að verða heill og meiðast. Ég vildi spila heilt tímabil. Ég gæti séð mig vera áfram, en það er ekki í mínum höndum. Það er undir þeim komið hvort þeir haldi mér eða ekki."

„Maður er meðvitaður um áhugann, ég les fréttir eins og allir aðrir fótboltaaðdáendur, því ég er slíkur. Sumt er algjört kjaftæði, en sumt er rétt. Ég geri mér samt engar væntingar fyrr en það er orðið konkret."

„Úrvalsdeildin er klárlega eitthvað sem ég er spenntur fyrir. Hún er besta deild í heimi. Vonandi, einn daginn, mun ég spila þar. Það er tempóið og snerpan, hversu hraður leikurinn er. Allir leikvangarnir eru fullir, stuðningsmenn eru mjög nálægt vellinum og þú getur fundið hvernig andrúmsloftið er þó að þú sért að horfa á í sjónvarpinu. Allir geta unnið alla á einhverjum tímapunkti, þetta er svo ófyrirsjáanlegt, og það gerir þetta að svo magnaðri deild."


Albert viðurkennir að óvissan um hans framtíð gæti truflað hann á komandi mánuðum.

„Það að spila fyrir þjóðina er ekki vandamál, ég mun alltaf gera mitt besta fyrir Ísland, sama hvort ég sé á löngum samningi hjá stóru félagi eða án félags."

„En auðvitað er öðruvísi að vita ekki hvað gerist á næstu vikum. Ég veit hvernig ég á að höndla það - verð rólegur og treysti öðrum. Umboðsmaðurinn veit hvaða lönd ég er að horfa til, og hvaða félög líka."

„Ég held það sé augljóst að ég vilji spila áfram á Ítalíu eða fara til Englands. Ef eitthvað annað spennandi tækifæri kemur upp í öðrum löndum, þá mun ég alltaf skoða það, en umboðsmaðurinn veit hvar einbeitingin á að vera,"
segir Albert.

Leikurinn gegn Skotum hefst klukkan 18:45 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Athugasemdir
banner