Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svo gott sem öruggt að Kudus fer frá West Ham
Mohammed Kudus.
Mohammed Kudus.
Mynd: EPA
Kaveh Solhekol, fréttamaður Sky Sports, telur það nánast öruggt að Mohammed Kudus muni yfirgefa West Ham í sumar.

Kudus hefur verið orðaður í burtu frá West Ham en Sky Sports greindi frá því í gær að félag í Sádi-Arabíu væri tilbúið að borga um 70 milljónir punda fyrir hann.

Þar kom þó fram að Kudus vilji ekki fara til Sádi-Arabíu og hafnaði risatilboði.

Solhekol telur að West Ham sé að biðja um á milli 70 og 80 milljón punda fyrir framherjann.

„Ég held að hann muni fara í félag í Meistaradeildinni," segir Solhekol.
Athugasemdir
banner
banner