Chelsea er ekki tilbúið að borga uppsett verð fyrir franska markvörðinn Mike Maignan.
AC Milan metur markvörðinn á 25 milljónir punda en Lundúnafélagið er ekki tilbúið að borga svo mikið.
AC Milan metur markvörðinn á 25 milljónir punda en Lundúnafélagið er ekki tilbúið að borga svo mikið.
Maignan á bara eitt ár eftir af samningi og Chelsea metur hann nær 10 milljónum punda.
Chelsea hefur átt í vandræðum með markvarðastöðu sína í dágóðan tíma núna en Robert Sanchez og Filip Jorgensen léku í marki liðsins á síðustu leiktíð. Hvorugur þeirra heillaði mikið.
Maignan, sem er 29 ára, hefur leikið með Milan frá 2021 og hefur hann staðið vaktina vel í markinu á Ítalíu.
Athugasemdir