Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 15:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvað þarf mikið svo Man Utd selji Höjlund?
Rasmus Höjlund.
Rasmus Höjlund.
Mynd: EPA
Ítalska félagið Inter Milan hefur spurst fyrir um Rasmus Höjlund, sóknarmann Manchester United.

Höjlund átti erfitt uppdráttar á nýliðnu tímabili og er einn af þeim leikmönnum sem Man Utd gæti látið fara ef það kemur nægilega gott tilboð.

Man Utd borgaði Atalanta 64 milljónir punda, kaupverð sem gæti hækkað í 72 milljónir punda, sumarið 2023 en samkvæmt Telegraph er félagið tilbúið að selja hann núna fyrir um 40 milljónir punda.

Það er talið að Inter vilji helst fá Höjlund á láni með kaupmöguleika.

Höjlund á aðdáendur í ítalska boltanum eftir að hafa staðið sig vel með Atalanta áður en hann fór til Englands.
Athugasemdir