Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lokahópur enska U21 landsliðsins - Delap fer á HM félagsliða
Harvey Elliott er í hópnum. Hann var líka í hópnum 2023.
Harvey Elliott er í hópnum. Hann var líka í hópnum 2023.
Mynd: EPA
Liam Delap verður með Chelsea á HM félagsliða.
Liam Delap verður með Chelsea á HM félagsliða.
Mynd: Chelsea
Enska U21 landsliðið hefur titil að verja á EM í sumar en liðið vann keppnina árið 2023.

Þá voru nöfn eins og Cole Palmer, Curtis Jones, Morgan Gibbs-White og Anthony Gordon í hópnum.

Lee Carsley er búinn að velja hópinn fyrir komandi mót og vekur athygli að Liam Delap, nýr leikmaður Chelsea, er ekki í hópnum en hann mun fara með Chelsea á HM félagsliða í staðinn.

Tino Livramento, Jarrell Quansah, Elliott Anderson, Jobe Bellingham og Harvey Elliott eru stærstu nöfnin í hópnum.

Mótið er haldið í Slóvakíu.

Markverðir: James Beadle, Teddy Sharman-Lowe, Tommy Simkin

Varnarmenn: Charlie Cresswell, Ronnie Edwards, CJ Egan-Riley, Tino Livramento, Brooke Norton-Cuffy, Jarell Quansah

Miðjumenn: Elliott Anderson, Jobe Bellingham, Archie Gray, Hayden Hackney, Jack Hinshelwood, James McAtee, Tyler Morton, Alex Scott

Sóknarmenn: Harvey Elliott, Omari Hutchinson, Sam Iling Junior, Ethan Nwaneri, Jonathan Rowe, Jay Stansfield
Athugasemdir
banner