Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 14:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd leggur fram annað tilboð í Mbeumo
Bryan Mbeumo.
Bryan Mbeumo.
Mynd: EPA
Manchester United hefur lagt fram nýtt tilboð í Bryan Mbeumo, framherja Brentford.

Heimildir ESPN herma að nýtt tilboð sé upp á meira en 60 milljónir punda.

Brentford hafnaði fyrsta tilboði United á dögunum. Það hljóðaði upp á 45 milljónir punda plus 10 milljónir punda í árangurstengdum gjöldum.

Brentford metur Mbeumo svipað verðmætan og Matheus Cunha sem United greiddi rúmlega 60 milljónir punda til að fá lausan frá Wolves. Það er því spurning hvort nýja tilboðið sé nóg.

Mbeumo verður 26 ára í ágúst. Hann átti frábært tímabil í vetur, skoraði 20 mörk og lagði upp átta í 38 úrvalsdeildarleikjum. Hann á ár eftir af samningi sínum við Brentford en félagið getur framlengt þann samning um ár til viðótar.
Athugasemdir